Hæ ég fæddist á fsa 17 Desember 2004 kl 08:31 ég var 3.170 gr og 49 cm. Ég bý á Sauðárkróki með Pabba,Mömmu og Margréti litlu systir minni og Sigríði stóru systir minni og kærastanum hennar. Ég er 5 ára verð 6 ára í desember er að byrja í skóla í haust mig hlakkar mikið til þess en er núna í leikskóla og í skólahóp er mjög duglegur. Mamma mín heitir Þórhildur Björk Sigurðardóttir (79) en er yfirleitt kölluð Tóta og Pabbi minn heitir Svanur Freyr Hauksson (70) Svo á ég 4 systur elsta er Sunna Dís (89) en hún býr í Portugal með manninum sínum og 2 synum Rafael(07) og Gabriel (09) svo kemur Sigríður Ásta (93) svo er það Elín María(01) svo er það Margrét Lilja (07) Ég hef áhuga á öllu sem viðkemur vélum hvort sem það heita bílar,gröfur,traktor eða hvað sem er og er líka með smá áhuga á fótbolta og held með Mancester Unidet svo hef ég líka áhuga á öllum verkfærum og að smíða. Takk fyrir að skoða síðuna mína það væri vel þegið ef þið mynduð kvitta í gestabókina!
Birgir:Nafnið merkir bjargvættur
Snær:Nafn þetta er fengið af nafnorðinu "snær" sem merkir snjór
Mamma er Konan
Sem kemur manni í heiminn
með mikilli fyrirhöfn
fæðir mann og klæðir
og veitir alla þá hlýju og ástúð
sem lítið barn þarf á að halda.
Mamma er alltaf til staðar
með útrétta hjálparhönd
þegar á þarf að halda.
Þerrar tárin þegar það er leiðinlegt
og gleðst með manni
þegar það er gaman að vera til.
Mamma er besta kona í heimi.
Pabbi er Maðurinn
Sem verður svo montinn þegar maður fæðist
að það mætti halda það hafi ekki fæðst barn áður
en það tekur hann bara nokkra daga
að komast niður á jörðina aftur.
Honum finnst skrítið að lítið barn
skuli ekki getað sofið alla nóttina
og kúkað í klósett eins og annað fólk.
Samt veit hann allt !!
Svo þegar maður verður aðeins eldri
og þá er hægt að fara að leika við mann
og kenna manni ýmislegt
þá finnst honum rosa gaman.
Pabbi er alltaf til staðar
með styrka hönd þegar á þarf að halda.
Pabbi er besti maður í heimi.
Þetta kerti logar fyrir ömmur mínar og afa minn.
Mamma mömmu minnar hét Margrét Svavarsdóttir (Maddý) og var fædd 9 ágúst 1951 en hún lést 21.júní 2007. Mamma og Pabbi pabba míns þau hétu Ástrós Reginbaldursdóttir. F. 28.07.52 D. 05.09.04 og Haukur Reynir Pálsson. f.20.12.49. D. 03.07.98.
Í bljúgri bæn og þökk til þín,
sem þekkir mig og verkin mín.
Ég leita þín. Guð leiddu mig
og lýstu mér um ævistig.
Ég reika oft á rangri leið,
sú rétta virðist aldrei greið.
Ég geri margt, sem miður fer,
og man svo sjaldan eftir þér.
Sú ein er bæn í brjósti mér,
ég betur kunni þjóna þér.
Því veit mér feta veginn þinn,
að verðir þú æ Drottinn minn.
BOGMAÐURINN
22. nóvember - 21. desember
Lítill fjörkálfur hefur litið dagsins ljós. Bogmannsbarnið er að öllu jöfnu glaðlegt og jákvætt og þægilegt í návist. Það þarf mikla hreyfingu og líklegt er að það fari snemma að ganga og skoða heiminn því bogmaðurinn er merki ferðalaga og strax í bernsku birtist þörfin fyrir ævintýraferðir af ýmsu tagi. Litlu bogmannskrílin þurfa að hafa gott pláss til að hreyfa sig en ef þau fá ekki útrás fyrir orku sína verða þau eirðarlaus og uppstökk. Bogmenn hafa yfirleitt yndi af íþróttum og hið dæmigerða bogmannsbarn er iðulega á kafi í alls konar íþróttaiðkunum. Listin að ala upp bogmann er fólgin í því að finna jafnvægi á milli frelsisþarfar annars vegar og ábyrgðarkennar og aga hins vegar. Foreldrar ættu að veita honum aðhald og venja hann á að ljúka því sem hann er að fást við áður en hann byrjar á nýju verki. Hann á það til að vera mjög fljótfær og nokkuð kærulaus og því þarf að hjálpa honum að þroska með sér dómgreind og skynsemi. Bogmannsbarnið verður mikið á ferðinni og um leið og það fer að komast sjálft ferða sinna leggur það í ferðalag um nágrennið og síðan lengra þannig að það getur verið erfitt að hafa stöðugt augun á þessu barni. Góða ferð.

